Markmið

NÚ vill veita unglingum tækifæri til að samtvinna íþróttaáhuga sinn og grunnskólanám þar sem nemandinn sinnir námi sínu af sama áhuga og íþróttinni. Með nútímatækni og nýjum kennsluaðferðum veitum við nemendum frelsi til að nálgast námið á eigin forsendum. Við viljum skapa umhverfi þar sem nemendur finna til ábyrgðar, áhuga, heilbrigði og umfram allt ánægju.

Hugmyndafræðin
og markmið

Sú krafa að allir nemendur meðtaki allt námsefni á sama hraða er óraunhæf. Dýrmætum tíma kennara með nemendum er ekki eytt í að þylja upp staðreyndir, heldur persónulega aðstoð við námsefnið. Nemendur fá tækifæri til að nálgast námsefnið á eigin forsendum og kennarinn aðstoðar hvern og einn nemanda á þeim stað sem hann er staddur. Aukið frelsi nemenda varðandi hvaða fagi skal sinnt hverju sinni eykur að okkar mati frumkvæði og árangur.

Það að burðast með níðþunga tösku fulla af bókum til og frá skóla heyrir sögunni til. Í takt við þróun tækninnar og umhverfissjónarmið eru flest námsgögn NÚ aðgengileg í fartölvu sem hver nemandi fær til afnota. Hana notar nemandinn til þess að leysa verkefni, sitja fyrirlestra og í aðra þætti námsins.

Okkur finnst íþróttaheimurinn vera smækkuð mynd af raunveruleikanum. Íþróttamaðurinn þarf að sigrast á líkamlegum, andlegum og félagslegum hindrunum til að ná árangri. Með markvissri þjálfun, mistökum, leiðréttingum og endurtekningum nær hann tökum á grein sinni. Við viljum hjálpa nemendum að beita sama hugsunarhætti í náminu. Markmið okkar er ekki að framleiða atvinnumenn í íþróttum, heldur atvinnumenn í lífinu. Við viljum smita metnað og markmiðasetningu íþróttaumhverfisins yfir í skólaumhverfið.

Líkamleg heilsa er augljóslega mikilvæg þeim sem stunda íþróttir. Langar setustundir skólalífsins draga úr virkni og áhuga. Við leggjum því áherslu á að nemendur endurnæri sig með reglulegri hreyfingu yfir skóladaginn. Andleg heilsa er ekki síður þýðingarmikill þáttur í lífi íþróttamannsins. Hvatning og jákvætt sjálfstal eru stórir þættir í uppbyggingu sjálfstrausts og einnig stórir þættir í starfi NÚ. Hnattræn lega Íslands gerir það að verkum að bróðurpart skólaársins eru krakkar að fara í og úr skóla í myrkri. Við segjum skammdeginu stríð á hendur og hefjum skólastarfið seinna en hefðbundið þykir. Byrjaðu daginn í dagsbirtu.

Vitu sækja um
hjá Nú?

Nemendur eru hvattir til að mæta með forráðamanni á umsóknarfund í apríl.

Free rooms

Ullamcorper bibendum habitasse massa nisl quisque urna laoreet ante mollis semper ut viverra aenean dui sem eget donec lorem class.

Support with documents

Elementum aliquam etiam donec purus tempor scelerisque volutpat mauris aliquet lorem pellentesque rhoncus interdum.

Got any questions

Tellus leo nec ornare egestas pulvinar litora congue amet sed diam sit in tristique primis phasellus volutpat elementum.

Spend your
time actively

Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit, sed do eiusmod tempor incididunt ut labore et dolore magna aliqua quis ipsum suspendisse.

Donec ultrices libero libero

Grunnskóli fyrir unglinga í íþróttum

NÚ er grunnskóli fyrir unglinga sem hafa áhuga á íþróttum. Nú tók til starfa haustið 2016 og opið er fyrir umsóknir.

Fill in the form to
make an appointment